Lýsing
Montane Podium anorakkurinn, er möguleg léttasti hlífðarjakki sem þú finnur!
Hannaður fyrir hlaupara sem vilja fara hratt yfir með sem minnsta þyngd í hlaupavestinu, þegar þyngdin og pakkanleikinn skipta höfuðmáli. Í podium anorakkinn er notað eitt léttasta efni sem völ er á án þess að það komi niður á öndunar- eða vatnsheldnieiginleikum. Pakkast niður í lítinn poka sem fylgir. Fullkomlega áræðanleg skel, sem fer sáralítið fyrir í hlaupakittinu, allt árið um kring.
Aqua Pro efnið, sem er notað í Podium fatnaðinn, er meðal léttustu, vatns- og veðurheldnustu efnum sem völ er á.
Tæknilegir eiginleikar
- Þyngd: 115g í stærð M
- Vatnshelt Aqua Pro Lite efni með öndun
- Límdir saumar
- Teygja í mitti
- Hetta með teygju og stífun í toppi
- 1/4 YKK rennilás, með endurskini og innri stormvörn við háls
- Aðsniðnar líningar á ermum með teygju að hluta
- Teygja neðan á anorakk
- Geymslupoki fylgir
- 360° VIA Trail Series® endurskin
- Lengd á baki: 73 cm í stærð M
Efni: Aqua Pro Lite með 15.000 mm vatnsheldni. Öndun: 15,000g/m2/24hrs MVTR
Hentar fyrir : göngur, hlaup og í bakpokann þegar veður getur beyst á skömmum tíma.