Lýsing
Montane Katla Hlaupapeysan er úr fisléttu, teygjanlegu efni sem veitir framúrskarandi öndun og er meðhöndlað þannig að lykt sest ekki í það. Hannað til að nota sem innsta eða millilag til að gefa aukahlýju á kaldari dögum í náttúruhlaupunum.
Tæknilegir eiginleikar:
- Þyngd: 205g í stærð M
- Teygjanlegt THERMO LITE flísefni með burstaðri bakhlið
- Meðhöndlað með POLYGIENE® sem kemur í veg fyrir að lykt sest í efnið
- Hálsmál fellur þétt að
- YKK 1/4 rennilás í hálsmáli
- Snið á ermum sem styður við hreyfingu
- Þumalgöt á ermum
- Líningar á ermum falla vel að vindheldum vettlingum
- VIA Trail Series® logo endurskin
- Lengd á baki 62cm í stærð M
Efni: 88% Polyester, 12% Elastane
Hentar vel í náttúru- og fjallahlaup og “fastpacking”