Lýsing
Dynafit Ultra 2 hlaupabuxurnar eru með góðum vösum í streng og henta vel fyrir lengri hlaup í kaldara loftslagi. Nýju Ultra 2 hlaupabuxurnar frá Dynafit eru hannaðar með það í huga að gera léttar hlaupabuxur sem ætlaðar eru fyrir löng hlaup í kaldara lofslagi, henta því frábærlega í utanvegahlaup á Íslandi. Teygjanlegt mittisbandið situr þægilega á mittinu án þess að vera hamlandi. Efnið, sem er teygjanlegt á 4 vegu veitir fullkomið frelsi til hreyfinga í allar áttir. Ómissandi fítusar eru til staðar s.s. renndur vasi aftanm í streng og vasi í mittifyrir gel eða litla drykkjarfösku. Mittisbandið er hægt að stilla eins og hentar hverjum og einum. Hlaupabuxurnar eru með flötum saumum fyrir meiri þægindi og endurskinsröndum fyrir aukið öryggi í myrkri.
Tæknilegir eiginleikar
- Þyngd: 151 g
- Teygjanlegt á 4 vegu
- Kemur í veg fyrir nudd
- Framúrskarandi öndun
- Teygjanlegt mitti
- Flatir saumar
- Vasi fyrir gel / Mjúka drykkjarflösku
- Endurskin
- Renndur vasi
- Snið: Aðskorið/þröngt – Til bæði í karla og konu sniði
- Efni:
- JERSEY BISTRETCH 155 (71%PA 29%EA)
- PA MESH STRETCH 150 (80%PA 20%EA)
Þvottaleiðbeiningar
- Þvoið á gerviefnastillingu á 40
- Má ekki fara í þurrkara
- Má ekki setja í þurrhreinsun
- Má ekki leggja í klór