Lýsing
Dart thermo langermabolurinn er meira en bara langermabolur. Þessi kvartrenndi bolur hentar sérstklega vel að vetri og á svölum dögum allt árið um kring sem tæknilegt grunnlag. Mjúkt, APEX THERMO ECO efnið í bolnum, er burstað að innanverðu og með “marled” áferð á ytra byrði. Hannaður til að veita hámarksþægindi næst húð og veita góða einangrun sem grunnlag að vetri eða einn og sér á öðrum árstíðum. Meðhöndlaður með POLYGIENE® þannig að lykt setjist ekki í efnið og tryggir ferskleika í marga daga.
Tæknilegir eiginleikar
- Þyngd: 210 g
- Meðhöndlað með POLYGIENE® sem hindrara ðaa lykt setjist í efnið, fullkomið fyrir margra daga notkun
- YKK 1/4 rennilás í hálsmáli. (Montane reverse coil semi-auto front zið with internal zip guard)
- Flatir saumar innan og utan á efninu koma í veg fyrir nuddsár og bæta endingu grunnlagsins, lágt, fyrirferðalítið hálsmál
- Framúrskarandi öndunareiginleikar efnisins gera bolinn fullkominn í hraðar göngur og ferðir sem krefjast mikillar líkmlegrar áreynslu.
- Aðsniðið til að tryggja þægindi næst húð
- Efni: 88% létt APEX THERMO ECO endurunnið polyester og 12% elastane